17. janúar 2006

Vá ég er svo dugleg að blogga *hóst hóst*...
Þá er ég komin aftur til Svíaríkis og tími kominn til að vakna úr bloggdvalanum sem hefur legið yfir mér! Búin að eiga alveg ótrúlega yndislega gott og langt jólafrí á Íslandi, mikil leti, mikið stuð, mikið borðað, mikið sofið, tjúttað, farið í sund og blue lagoon, flippað og jammjamm bara þetta venjulega! Því miður gleymdist myndavélin, þ.e.a.s. ég steingleymdi að taka myndir, ekki nógu gott! Þó ég sé ekki vön að setja mér áramótaheit þá er ég samt búin að lofa sjálfri mér að vera duglegri að taka myndir á nýju ári...
Ég flaug til Stokkhólms í gær, kvaddi Ísland í brjálaðri snjókomu og mjög ljúft að koma hingað í íbúðina mína aftur. Þrátt fyrir mikið stress um morguninn þá náði ég að slappa af þegar taskan mín var akkurat 20 kg og kellingin bað ekki um að fá að vigta handfarangurinn (já jiminn góður, ég og Hjördís lentum sko illa í því á leiðinni heim til Íslands fyrir jólin). Svo þegar hingað var komið sá ég að blokkin mín var ennþá á sínum stað, lyklarnir gleymdust ekki á Íslandi, og ekkert búið að stela, kveikja í eða ibúðin mín full af vatni! Mikill léttir..hehe...
Er búin að reyna að koma mér aftur í lærdómsgírinn í allan dag og gengur illa, vonandi að þetta fari að koma því skúlenn byrjar aftur á morgun.
Þannig að fyrir ykkur sem voru farin að efast þá er ég enn á lífi!
ciao
...
Vala að vakna úr letinni

5 ummæli:

Hildur Sólveig sagði...

Elskan... ég er núna búin með fyrsta próf ársins!!! Sem betur fer náði maður. Ekki væri gott að byrja árinu ílla! holy crap man. Leiðinlegt að við heyrðumst ekkert áður en þú fórst... en SKYPE er alltaf hérna hjá okkur, þannig að við reddum þessu :) Ég heyri í þér skvís!

Nafnlaus sagði...

Hæ og takk fyrir síðast!:) og TIL HAMINGJU!;) Ég er líka búin að fá að vita úr stærðfræðiprófinu og náði! víí.. Fyrsti skóladagurinn í dag, ætli maður lifi þetta af?

Auður Ósk sagði...

til hamingju með stærðfræðiprófið sæta!! :) vissi alveg að þú næðir því léttilega, þú ert svo klár ;)

Nafnlaus sagði...

congrats með stærðfræðina. Núna er bara að halda vel uppá það í kvöld.

Nafnlaus sagði...

takk fyrir það stelpur;) og já það verður klárlega kíkt á Onsdags í kvöld! ciao