31. ágúst 2006

Ísland-Stokkhólmur-Krít...

Jæja elskurnar mínar!:) Ég var búin að lofa bloggi þegar ég kæmi til Stokkhólms, en ég er bara búin að vera svo rosalega bissí eða löt við að skrifa þannig að ég hef bara ekki komið því í verk...
Ég og Rósa flugum hingað á sunnudaginn og gekk flugið áfallalaust fyrir sig, engar töskur gleymdust, engin yfirvigt rukkuð, við vorum akkurat með 45,6 kíló saman (af 46 mögulegum) já geri aðrir betur! Svo sátum við bara í algjörum elítusætum umkringdar sænska kvennalandsliðinu í fótbolta, hefði nú ekkert haft á móti því að hafa karlalandsliðið þarna í staðin hehe, en jájá celebrities bara hægri vinstri (eða ekki).. jæja svo eftir ansi langt aðflug lentum við loksins og svo var hún Kolla svo mikið æði að koma að sækja okkur á flugvöllinn!:) Tusen kramar fyrir það sæta!;) Þar tók á móti okkur sól og blíða og vorum svo ekki lengi að henda dótinu okkar inn í íbúð, þar sem ég var svo góðhjörtuð að veita hinum heimilislausa Rósmundi Svensson húsaskjól þangað til við förum til Krítar á sunnudaginn.. já við bókstaflega hentum töskunum inn og svo beint í 8 vagna limmuna okkar, a.k.a. T-banan, og niðrí bæ, klukkutíma búðarrölt og pizza í Kungshallen! Svo var bara tekið kósý náttfata heimakvöld með þrumuveður úti í þokkabót...
Vikan er búin að einkennast af miklum innkaupum af minni hálfu, mín gerði sér lítið fyrir og keypti loksins sjónvarp, örbylgjuofn og brauðrist á heimilið, og þar að auki pantaði ég nýjan sófa úr Ikea og 2 eldhússtóla í viðbót og 3 lampa... þannig að ég held ég geti loksins kallað íbúðina mína heimili!
Svo byrjaði ég í skólanum á miðvikudaginn og herre gud... vá ég vissi ekki að 2 klst fyrirlestur gæti tekið heila viku...! Eða já svona virkar þannig alla vega!
Næst á dagskrá er svo Krítarferðin sem ég er búin að bíða eftir í allt sumar og hlakka ekki lítið til...
Jæja ætla að fara að glápa á nýja TV-ið mitt:)
knús og kram
...
Valfríður Svensson...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Halló húdú,
hvernig er skypesambandið hjá þér, alltaf offline, hvernig er þetta. Er sjónvarpið þarna í sverige svona spennandi - Svenssonarnir mínir, hvernig væri að vera í sambandi fyrir CRETA eða þannig sko.
Mútta itti húdú.

Nafnlaus sagði...

miss you sætust!!!

Nafnlaus sagði...

Vó bara komið sjónvarp og læti!! Það er naumast!! ;) verið að fá útrás á sumarlaununum!!! En við verðum að hittast á msn fljótlega, farin að sakna þess að tala ekki við þig á hverjum degi!!;)

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra frá þér. Ef þig vantar einhver svona tips fyrir íbúðina, þá hringiru bara í mig. Hef náttúrulega mikla reynslu eftir að hafa innrétt framhýsið.
Lots of love
Kveðja,
Sesselja