3. mars 2006


Þá er víst kominn tími til að blogga smá...
...lífið í Stokkhólmi gengur sinn vanagang, það er ennþá snjór, snjór og snjór, en dagurinn er farinn að lengjast og það er allt að birta til, sem hjálpar þreytta námsmanninum að vakna á morgnana!
Á laugardaginn var stelpukvöld með íslensku stelpunum sem einkenndist af magadansi ("ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að tæla einhvern með þessum dansi mínum..."), pizzu og nammiáti, blaðri og slúðri og melodifestivalen og eftir að hafa hneysklast á sænskum "swedish or gay" gaurum, klæðnaði í formi sirkustjalds, fabíóa í hlírabol með pallíettum og lélegum lögum ákváðum við að slá upp okkar eigin söngvakeppni í formi SingStar...takk fyrir kvöldið stelpur!Svo er bara næst á dagskrá að plana girls night 3...
Úff það er alveg greinilegt að ég þarf að fara að blogga meira, á í mestu erfiðleikum núna með að rifja upp vikuna... en...allavega...
Í kvöld er planið að fara á semi-árshátíð okkar fyrstaárs vélaverkfræðinema, "Ettans Fest", þemað er frumskógur! Ég hélt fyrst að það væri verið að tala um skreytingarnar, en svo sögðu bekkjarbræður mínir að maður ætti að mæta klæddur eftir þemanu, hmm.. já.. ég var samt ekki alveg viss um hvort þeir væru að rugla í mér eða ekki, ég meina alveg týpískt að þeir færu að plata vitlausu íslensku stelpuna! Svo myndi ég mæta þarna í apabúning eða í risalaufblöðum einum klæða... hahaha... kannski maður taki bara svona milliveginn á þetta og fari í grænum kjól eða kaupi sér bol með hlébarðamunstri eða fái lánað rúmteppið hennar Betu!:) En það verður vonandi stuð, ætlum að hittast nokkur úr bekknum, húsið opnar 18:30 og svo verður matur og djammz...










...
Vala banana

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

híhíhíhí! sé þetta alveg fullkomnlega fyrir mér... vala mætt á svæðið í apabúning haldandi á banana og svo kemur í ljós að strákarnir hefðu bara verið að djóka í þér og allir aðrir mættir í casual djammfötum! smá nasty... heheheh! :P

Dagny Ben sagði...

Takk fyrir sidast.
Goda skemmtun a Ettans fest!

Nafnlaus sagði...

já.. svona eins og í legally blonde, þegar hún mætti í kanínubúningnum... fyndið:D
góða skemmtun í kvöld elskan, vonandi að þú hafir fundið rétta apaoutfittið!;)

Nafnlaus sagði...

Þú verður nú að mæta með banana ef þú velur apabúning;) En góða skemmtun og það verður gaman að fylgjast með næsta bloggi og komast að því hvort strákarnir voru að plata íslensku stelpuna eða ekki.. En þú getur nú annars bara mætt eins og þú villt, ert náttúrulega svo wild sjálf, er það ekki?;)