7. mars 2006

Topp 10 listi yfir hluti sem er "nauðsynlegt" að gera þegar maður á að vera að læra fyrir próf...

*Taka til... ég meina, maður getur ekki einbeitt sér þegar allt er í drasli í kringum mann...
*Raða fötunum í fataskápnum
*Skoða fréttirnar á mbl, vísi, rúv, aftonbladet, dagbladet, stockholmcity og...
*Borða! Það er bara eins og maginn á manni hefjist upp í annað veldi og maður er sífellt svangur eða að hugsa um mat eða nammi...
*Fara út í göngutúr og dásama hvað Stokkhólmur er falleg borg og taka vetrarmyndir...
*Hanga á msn...
*Sofa...lærdómur reynir svooo mikið á heilann.. maður þarf allt í einu 12 tíma svefn á nóttunni plús að leggja sig á tveggja tíma fresti
*Þrifa klósett! Já, ótrúlegt en satt, það er eins og maður sé bara allt í einu búin að breytast í einhvern ofur ræstitækni og klósettþrif orðin það skemmtilegasta sem maður veit...
*Gera armbeygjur
*Hringja út um allan bæ...

Endilega látið mig vita ef ykkur dettur fleira i hug...
...
Vala lestrar"hestur"

7 ummæli:

Dagny Ben sagði...

Ef maður er með sjónvarp er líka ansi hætt við að maður horfi á það í stað þess að læra ;0)

Nafnlaus sagði...

heheh kannast alltof vel við svona lista! það er bara þannig að þegar maður á að vera að læra undir próf þá verður allt annað miklu "nauðsynlegra"... svona eins og að taka til og allt hitt sem maður lætur vanalega sitja á hakanum! ;)

Nafnlaus sagði...

maginn í annað veldi!!! hahaha!! góð vala, en þetta er alveg satt sko, maður er alltaf að taka matarpásur! en gangi þér vel að læra elskan!;)

Nafnlaus sagði...

svo er svo gaman að blogga og spila á píanóið..

Nafnlaus sagði...

Ég verð að segja að ég er alveg sammála þessu öllu saman :P

Nafnlaus sagði...

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL

Nafnlaus sagði...

hahaha...þakka þér þakka þér!;)