27. apríl 2006

Ennþá í páskafríi...
...nei því miður ekki svo gott en fólk virðist eitthvað farið að halda það miðað við bloggleysis ástandið sem er á mér þessa dagana! Get samt ekki sagt að það sé vegna þess að ég sé aldrei í tölvu því ég hef nánast búið í tölvustofunni í M-húsinu seinustu daga við að gera þessi yndislegu Matlab/Numme verkefni sem ég elska svo mikið! Haha..vildi að það væri svo gott.. en erum alla vega búnar að redovisa alla 5 labbana, seinasti í dag! Jibbí kóla! Semsagt 3 einingar komnar í viðbót, lovely, plús 3 bónusstig á prófinu, reyndar ekki stórt hlutfall af þeim 35 stigum sem prófið er en alla vega byrjunin! Prófið er semsagt á þriðjudaginn þannig að þangað til sé ég ekki fram á mikið annað en lærdóm... Svo voru niðurstöður úr Mekanik prófinu að koma í dag, NEMA ekki á okkar braut! Við vorum semsagt 3 brautir að taka sama prófið og það var 15% sem NÁÐU í P deildinni en 50% í T... og þar sem mér gekk hræðilega í þessu prófi sé ég ekki fram á annað en endurtektarpróf sem er 12.maí þannig að það er nóg að gera framundan! Það er samt gott að vita að ég er ekki eina manneskjan sem er að skíta á sig í þessu "uppáhalds" fagi mínu. En hvað getur maður gert annað en að reyna betur næst.. það er samt algjört rugl að lærdómurinn allt páskafríið hafi ekki skilaðn neinu! En jæja Vala nóg af skólanöldri...
En jæja nenni ekki að blogga lengur, ætla að fara að kaupa í matinn, ísskápurinn nánast tómur... hræðilegt ástandið á þessum bæ... hahaha..
Lofa skemmtilegu bloggi á morgun! Greinilega ekki í bloggstuðinu í dag
ciao
...
Vala ...oh det är så jobbigt! hahaha

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

búnar að redovisa alla 5 labbana.... ö gæturu bloggað e-n tímann á íslenslu takk ;)

franski ríkisborgarinn...

Nafnlaus sagði...

óþarfi að mála skrattann á vegginn . . . maður er ekki fallinn fyrr en maður hefur fallið. Vonum það besta

kveðja, Randri

Nafnlaus sagði...

Vad er P og vad er T deild? I hvada deild ert thu?

Nafnlaus sagði...

M deild... maskinteknik! P er design-och produktframtagning, T er farkost... ert þú ekki í Finnlandi?

Nafnlaus sagði...

Jæja gamlan þín 5 stk komment komin. Ef að þú hefðir ekki verið á fullu að forrita eins og sönnum forritunarxxxx sæmir þá myndi ég ekki afsaka þessa blogglægð:)
Farðu nú að blogga fyrir mig það er svo gaman að lesa bullið þitt....